Aug
13
Ertu búin(n) að staðfesta komu þína?
Filed Under Daglegt | 2 Comments
Jul
29
Mín skoðun
Filed Under Daglegt | Leave a Comment
Iceland Express má brenna í helvíti. Að tíma ekki að splæsa í landgang fyrir farþega sína þegar það er úrhellis rigning úti …
Þetta var mín skoðun.
Jul
3
Mín skoðun
Filed Under Daglegt | Leave a Comment
Trukkar, sendiferðabílar, JEPPAR og aðrir þungir bílar ættu að fá helmingi, eða þrisvar sinnum hærri sekt fyrir hraðakstur en aðrir. Það er ótrúlegt að sjá þessa vanvita þenja vélarnar sínar á götum borgarinnar enda þurfa þeir ekki að hafa áhyggur af að slasast í árekstri við venjulega fólksbíla.
Þetta var mín skoðun.
Jul
1
Eftir margra mánaða vinnu og margar vökunætur undanfarið er
nýr vefur Háskóla Íslands loksins kominn á koppinn. Það var menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín sem opnaði vefinn við formlega athöfn í Háskóla Íslands núna rétt áðan.
Skapalón sá auðvitað um hönnun vefsins í samstarfi við frábæran hóp fólks í Háskóla Íslands.
Takk fyrir.
Jun
27
Endajaxlarnir farnir … loksins!
Filed Under Daglegt, Nöldur | Leave a Comment
Þá er búið að taka hina hliðina. Ég átt nefnilega eftir að taka vinstri endajaxlana og hef hálfpartinn verið að forðast það í átta ár því þegar hægri hliðin var tekin þá átti lenti ég í mjög vondri reynslu (sem ég nenni ekki að fara útí hér :))
Hörður tannlæknir massaði þetta þó mjög vel og var snöggur að. Þessar tennur eru heldur ekkert litlar, massívar rætur og allt.
Því sit ég hér við tölvuna, þurfti að taka frí í vinnunni og var að down-a Panodil til að slá á bólguna því ég er farinn að líta út eins og hamstur, öðru megin.
Kannski maður taki því rólega um helgina, held semt ekki. Nýr vefur að fara í loftið á þriðjudaginn og ég þarf að vera á “stand-by” alla helgina … gaman!
Jun
26
Flottur
Filed Under Daglegt | 3 Comments
Þessi er flottur á hlaupum … og þessi líka!
Jun
25
51:19
Filed Under Daglegt, Íþróttir | Leave a Comment
Þetta er tíminn minn og ég er bara nokkuð sáttur við hann. Ég tók semsagt þátt í Miðnæturhlaupi Powerade á mánudaginn var og ákvað að hlaupa 10 km með nokkrum félögum úr Landsbankanum. Ég verð að viðurkenna að ég var örlítið stressaður fyrir hlaupið þar sem ég hafði ekkert náð að æfa og vissi ekkert í hverskonar formi ég var í fyrir átökin.
Það kom svo á daginn að ég var í betra formi en ég átti von á. Eftir hálfan fyrri hringinn í hlaupinu var ég ekki bjartsýnn, fannst eins og ég ætti ekki meiri orku en 5 km. en áður en ég vissi af var vélin farin að mala og ég tölti þetta bara vandlega þangað til síðasti kílómeterinn var eftir en þá gaf ég duglega í og vann mig upp um 5 sæti. Kom Sigur Rós í eyrum á harða hlaupum í markið og fagnaði að sjálfsögðu mikið (auk þess að fá krampa í báða kálfa! :))
Sáttur við gott hlaup fórum við félagarnir í sund þar sem tekið var við bikurum og öðrum verðlaunum. Ég uni sáttur við mitt, 197 sæti af 378. Nú er bara að halda áfram að hlaupa …
197 51:19 Jonathan G Pedersen 1977 19 - 39 ára
Jun
23
Miðnæturhlaup
Filed Under Daglegt | Leave a Comment
… sem nú hefur fengið nýtt nafn, Miðnæturhlaup Powerade hefst eftir aðeins fjóran og hálfan tíma. Ég skráði mig víst í 10km og ekki laust við að maður sér pínu stressaður. Ég veit ekki afhverju, ég meina ég hleyp þessa vegalengt í hverri viku í mánudags boltanum en það er eitthvað við það að hlaupa bara án þess að vera á eftir (eða á undan) bolta sem hræðir mig.
Allavega … wish me luck! Ég verð heppinn ef ég kem í mark á undir klukkutíma ![]()
Jun
18
Ísland 2 - 0 Ísbirnir
Filed Under Daglegt | 2 Comments
Jun
16
Mjög góð helgi að baki. Eftir vinnu á föstudag skellti ég mér í sumarpartý Rue De Net en þeir eru einmitt hérna steinsnar frá bankanum á Vesturgötu 3. Þar gæddi maður sér á Tapas og rabbaði við mann og annan, þá sérstaklega verslunarstjóra nýrrar netverslunar Nýherja sem ég einmitt hannaði um daginn.
Þaðan lá leiðin heim, beint upp í sófa að horfa á Holland - Frakkland í sjónkanum. Það var auðvitað hin besta skemmtun eins og allir þeir leikir sem ég hef horft á á EM hingað til (Áfram Holland!). Vonandi verður restin bara jafn góð …
Á laugardaginn kíktum við Erla í bæinn og versluðum aðeins. Ég keypti mér jakkaföt og skyrtu og Erla gallabuxur og belti. Fórum svo með Guðjón Inga í næturpössun til Helgu ömmu og fórum svo til móts við Elvu og Magga sem biðu eftir okkur uppi á Smáratorgi.
Við fórum svo þaðan beint í Bláa lónið í góða veðrinu og slöppuðum vel af þar, þrátt fyrir mikinn fjölda fólks sem var einmitt þarna í sömu erindagjörðum
Eftir gott afslappelsi var farið aftur í bæinn og snædd pedsa að hætti Pizza Company á Laugarveginum.
Sunnudagurinn fór svo í vinnu niðri í Landsbanka ..
Ég lofaði mér nú því að fara ekki að blaðra um eigin líkamsrækt hérna á blogginu en get kannski sagt frá því að ég skráði mig ásamt vinnufélögum mínum í vefdeild Landsbankans í 10km Miðnæturhlaup ÍBR sem haldið verður á Jónsmessunótt. Kannski maður hlaupi duglega og velti sér svo upp úr dögginni … einhver með??

